Forsíða > Efnahagsmál, Stjórnmál, Umhverfismál, Utanríkismál > Eyðum í frið og uppbyggingu, hættum að styðja stríð. Ísland úr Nató.

Eyðum í frið og uppbyggingu, hættum að styðja stríð. Ísland úr Nató.

8. janúar, 2012

Við Íslendingar megum skammast okkar, það var ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar sem kom okkur í hóp “hinna viljugu ríkja” sem stóðu að innrásinni í Íraq. Ekki er nóg að segja sig frá þeim lista, heldur þarf Ísland einnig að ganga út Nató. Þá aura sem við það sparast, má að minnsta kosti tvöfalda til mannúðarmála svo sem barnahjálpar.

Núverandi ríkisstjórn er ekki stikkfrí, í gegn um Nató hefur hún stutt linnulausar loftárásir á Líbýu. Í því stríði veit engin hve margir hafa fallið, enda hafa stóru fréttastofurnar lítinn áhuga á afleiðingu stríða. Alla vega eru heilu borgirnar rústir einar, þar sem þungvopnaðir uppreisnarmenn fara enn þá um, og skjóta á það sem þeim sýnist.

Hér er lítil frétt frá Líbýu sem verkja upp spurningar. Var það þetta sem við vildum.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.