Forsíða > Efnahagsmál, Stjórnmál, Verkalýðsmál > Eftir höfðinu dansa limirnir.

Eftir höfðinu dansa limirnir.

14. nóvember, 2011

Það kannast flestir við að hafa átt gamlan bíl eða tæki sem alltaf er að bila. Það er haldið áfram að moka varahlutum og viðgerðum í tækið en þá gefur eitthvað annað sig. Á endanum er búið að eyða svo miklu í tækið að menn telja sér trú um að ekki sé hægt að endurnýja og er þá haldið áfram að moka í botnlausa hít. Að vísu gefast flestir upp í tíma, en það gera ráðalausar ríkisstjórnir Vesturlanda ekki.

Þetta er kemur upp í hugann, þegar hlustað er á fréttir um vandræðagang fjármálakerfis kapítalismans. Það er orðið ljóst að kerfið er ónýtt og það verður ekki lagað. Það þarf einfaldlega að gefa upp, það var vitlaust gefið. Langvarandi vaxtaokur hefur sogað allan mátt úr einstaklingum og opinberum fyrirtækjum, sem ekki eiga möguleika á að greiða uppsettar skuldir á mannsævi, einkafyrirtæki og auðmenn fá hinsvegar afskrifað.

En því miður er stjórnmálastéttin ekki vandanum vaxin, ásamt því að auðmjúk blaðamannastétt þjónar eigendum sínum. En eftir (heilaþvegnu)höfðinu dansa svo limirnir.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.