Já, vald spillir!
11. nóvember, 2011
Í dag kom til mín maður sem vildi að ég skilaði því til Steingríms, að menn færu ekki í ríkisstjórn til þess að taka við af þeirri gömlu, heldur færu menn í ríkisstjórn til þess að breyta, það væri pólitík. Ekki nenni ég að elta Steingrím uppi, en get þó verið kunningja mínum sammála. Það er aumt hlutskipti að taka að sér hreinsunarstarf á sorphaugum íhaldsins og telja sig vera að vinna þjóðþrifaverk, en vera svo bara í innheimtunni fyrir auðvaldið.
Eitt er þó víst, hún verður þakklát íhaldsstjórnin sem tekur við af þessari með hreint borð og vængstífðann verkalýð. En því er ekki að leyna að það angrar mann, að þetta hafi svo eftir allt, bara snúist um völd en ekki hugsjónir. Já, vald spillir.
Categories: Efnahagsmál, Stjórnmál, Verkalýðsmál
„hún verður þakklát íhaldsstjórnin sem tekur við af þessari með hreint borð “, þarna er ég svo sammála, en annað…..