Forsíða > Menning, Stjórnmál, Utanríkismál > Komið ykkur upp kjarnorkuvopnum.

Komið ykkur upp kjarnorkuvopnum.

19. október, 2011

Nú hefur Nató og Bandaríkin sent frá sér skýr skilaboð: „Ef þið ætlið að halda völdum, verðið þið að koma ykkur upp kjarnavopnum”. Bandaríkjamenn og leppar þeirra í Nató, ráðast inn í Afganistan, Iraq og nú síðast í Líbýu. Ekki hvarflar að þeim að stugga við Norður- Kóreu eða Pakistan, enda búa þau yfir kjarnavopnum.

Í Líbýu hefur trúlega átt sér stað einn stærsti stríðsglæpur seinni tíma, þar sem Nató sprengdi uppreisnarmönnum leið í gegnum landið í skjóli loðinnar ályktunar frá Öryggisráðinu. Sprengjur hafa fallið á skóla og sjúkrahús og enginn veit hvað margir hafa fallið.

Nú ríður á að Íranir geti komið sér upp kjarnavopnum hið fyrsta, eins er það með önnur ríki sem ekki eru í náðinni hjá Bandaríkjamönnum og leppum þeirra í Nató. Þau verða að vera sér úti um úran og hefja sprengingar svo fljótt og auðið er annars er voðinn vís. Flott skilaboð það, gleymum því ekki, að þetta var allt með samþykki Ríkisstjórnar Íslands.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.